Man Utd og Arsenal vilja Guehi - Osimhen gæti farið til Chelsea eða PSG - Geertruida gæti fylgt Slot til Liverpool
   fim 04. apríl 2024 19:04
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Lamine Yamal vill ekki gera sömu mistök og Pedri - „Ekki rökrétt"
Mynd: Getty Images

Hinn 16 ára gamli Lamine Yamal leikmaður Barcelona vill ekki gera sömu mistök og samherji sinn Pedri og setja of mikið álag á líkama sinn.


Pedri spilaði á EM og Ólympíuleikunum fyrir Spán árið 2021 og hefur ferill hans einkennst af meiðslum síðan þá.

Yamal hefur vakið verðskuldaða athygli en hann hefur spilað 38 leiki fyrir Barcelona í öllum keppnum á þessari leiktíð.

Hann hefur spilað sex landsleiki fyrir hönd Spánar en landsliðið vill að hann verði í hópnum á EM í Þýskalandi sem hefst 14. júní og á Ólympíuleikunum í Frakklandi sem hefjast 24 júlí.

„Það væri ekki rökrétt að fara á bæði mótin. Frá því ég byrjaði hefur þetta snúist um að spila mér ekki of mikið, það myndi ekki meika sens að fara á bæði mótin. Ef ég verð að fara þá geri ég það auðvitað, maður er að spila fyrir Spán sem er draumur," sagði Yamal.


Athugasemdir
banner
banner
banner