Félög í Sádi-Arabíu vilja Casemiro og Bruno - Real vill fá Trent frá Liverpool - Alonso ætlar að stýra Liverpool, Real og Bayern
   mán 29. apríl 2024 09:10
Elvar Geir Magnússon
Man Utd og Arsenal vilja Guehi - Geertruida gæti fylgt Slot til Liverpool
Powerade
Marc Guehi (til vinstri) er orðaður við Palace.
Marc Guehi (til vinstri) er orðaður við Palace.
Mynd: Getty Images
Lutsharel Geertruida og Virgil van Dijk.
Lutsharel Geertruida og Virgil van Dijk.
Mynd: EPA
Lucas Paqueta.
Lucas Paqueta.
Mynd: EPA
Vonandi var helgin ykkur góð. Guehi, Osimhen, Sancho, Lewandowski, Geertruida, Silva, Branthwaite og fleiri í slúðurpakkanum á mánudegi.

Crystal Palace óttast að enski varnarmaðurinn Marc Guehi (23), sem metinn er á 55 milljónir punda, gæti farið í sumar, en Manchester United og Arsenal hafa áhuga á honum. (Times)

Victor Osimhen (25), framherji Nígeríu, mun yfirgefa Napoli í sumar. Chelsea og PSG eru líklegust að fá hann. (Gazzetta - á ítölsku)

Borussia Dortmund mun reyna að breyta lánssamningi enska sóknarleikmannsins Jadon Sancho (24) frá Manchester United í fastan samning í sumar. (Fabrizio Romano)

Manchester United er að íhuga framtíð stjórans Erik ten Hag. Mögulegt er að Sancho spili aftur fyrir United ef stjóraskipti verða. (Express)

Liverpool er að búa sig undir að fá tilboð upp á allt að 150 milljónir punda frá félögum í Sádi-Arabíu í egypska sóknarmanninn Mohamed Salah (31). (Football Insider)

Hollenski varnarmaðurinn Lutsharel Geertruida (23) gæti fylgt stjóranum Arne Slot frá Feyenoord til Liverpool eftir að varnarmaðurinn sást í stúkunni í 2-2 jafntefli enska stórliðsins gegn West Ham á laugardaginn. (Express)

Pólski framherjinn Robert Lewandowski (35) vill vera áfram hjá Barcelona í sumar þrátt fyrir áhuga frá félögum í Sádi-Arabíu. (Sport)

Juventus og Roma hafa áhuga á Charlie Patino (20) miðjumanni Arsenal, Englendingurinn er í láni hjá Swansea City. (Calciomercato)

Lucas Paqueta (26) miðjumaður West Ham og brasilíska landsliðsins,segist vera „mjög ánægður“ hjá félaginu. Vangaveltur hafa verið í gangi um að hann muni ganga til liðs við Manchester City. (ESPN)

Arsenal, Liverpool og Manchester United hafa áhuga á Carlos Baleba (20), kamerúnskum miðjumanni Brighton. (Caught Offside)

Leeds vill fá enska varnarmanninn Nat Phillips (27) frá Liverpool en hann er hjá Cardiff á láni. (Yorkshire Post)

Manchester United og Chelsea gætu keppt um hollenska varnarmanninn Denzel Dumfries (28) hjá Inter Milan, 28. (Fichajes)

Brasilíski miðvörðurinn Thiago Silva (39) hyggst yfirgefa Chelsea í lok tímabilsins en hann er orðaður við Fluminense. (Teamtalk)

Everton gæti þurft að selja enska varnarmanninn Jarrad Branthwaite (21) til að fara eftir fjárhagsreglum. Það opnar dyrnar fyrir Manchester United. (Sun)

Arsenal hefur hafið viðræður um nýjan samning við brasilíska varnarmanninn Gabriel (26). (Fichajes)

Arsenal og Borussia Dortmund hafa áhuga á Brian Farinas (18), spænskum miðjumanni Barcelona. (Caught Offside)

Blackburn vill fá allt að 20 milljónir punda fyrir Sammie Szmodics (28), framherja Írlands, en Brentford, Luton og Sheffield United hafa allir áhuga á honum. (Sun)
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner