Félög í Sádi-Arabíu vilja Casemiro og Bruno - Real vill fá Trent frá Liverpool - Alonso ætlar að stýra Liverpool, Real og Bayern
   mán 29. apríl 2024 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Alonso í banni næstu helgi
Mynd: Getty Images
Xabi Alonso, þjálfari Bayer Leverkusen, verður í banni þegar liðið mætir Eintracht Frankfurt næstu helgi.

Spánverjinn fékk að líta sitt fjórða gula spjald á tímabilinu í 2-2 jafnteflinu gegn Stuttgart í gær og er því kominn í eins leiks bann.

Hann fær ekki að vera á hliðarlínunni er Leverkusen spilar við Frankfurt á sunnudag.

Sebastian Parilla eða Alberto Encinas munu koma í hans stað.

Leverkusen hefur ekki enn tapað leik á tímabilinu og gæti orðið fyrsta þýska liðið til að fara taplaust í gegnum tímabilið eftir sameiningu Þýskalands.
Athugasemdir
banner
banner