Þorvaldur Örlygsson, þjálfari Keflavík, var ekki sérstaklega sáttur við 1-1 jafntefli gegn sínum gömlu félögum í HK í kvöld en leikið var í 1.umferð Inkasso deildarinnar.
HK komst yfir með marki Ragnars Leóssonar áður en Sigurbergur Elísson skoraði með góðu skoti.
HK komst yfir með marki Ragnars Leóssonar áður en Sigurbergur Elísson skoraði með góðu skoti.
Lestu um leikinn: HK 1 - 1 Keflavík
„Við fáum færi til að klára leikinn. Við vissum hvernig hann myndi spilast. Þeir eru seinir í tæklingarnar og leggja mikið uppúr því að fara í menn. Þeir munu fá mikið af gulum spjöldum."
„Við áttum séns í 1-1 að vinna leikinn en við þurftum að hafa fyrir því að koma til baka og jafna. Við vorum svolítið týndir eftir að hafa fengið markið á okkur en svo komum við betur inn í það."
Reynir Leósson, þjálfari HK virtist ekki sérlega sáttur við Þorvald eftir leik en Þorvaldi fannst ásakanir hans afar fyndnar.
„Reynir þjálfar ekki Keflavík, hann verður að einbeita sér að sínu liði. Ef hann vill starfið mitt þá hringir hann bara í formanninn. Hann er góður að hringja í formenn."
Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir