Man Utd og Arsenal vilja Guehi - Osimhen gæti farið til Chelsea eða PSG - Geertruida gæti fylgt Slot til Liverpool
banner
   sun 07. apríl 2024 10:00
Brynjar Ingi Erluson
Ást við fyrstu sýn þegar Klopp hitti Mac Allister- „Ég elska hann“
Alexis Mac Allister og Jürgen Klopp
Alexis Mac Allister og Jürgen Klopp
Mynd: Getty Images
Mynd: Getty Images
Argentínski miðjumaðurinn Alexis Mac Allister er ein bestu kaup tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni og ekki bara vegna verðmiðans heldur einnig vegna þess sem hann hefur gert fyrir liðið á fyrsta tímabili sínu.

Stuðningsmenn Liverpool fögnuðu því ákaflega þegar Liverpool keypti Mac Allister frá Brighton á síðasta ári.

Liverpool borgaði í kringum 35 milljónir punda fyrir Argentínumanninn, sem verður að teljast tombóluverð fyrir leikmann í þessum gæðaflokki.

Mac Allister hefur sýnt að hann sé hverrar krónu virði og rétt rúmlega það. Í síðustu sex leikjum hefur hann komið að sjö mörkum og verið afar dýrmætur á mikilvægum augnablikum.

„Hvernig er ekki hægt að elska leikmann eða strák eins og hann? Hann er ótrúlegur og fróður á besta mögulega máta. Hann er kurteis, öruggur, fyndinn, klár og er í raun bara ótrúlegur fótboltamaður. Guð minn góður, bara maður horfir á æfingar og það er eins og þjálfararnir horfi bara hver á annan: „Vá, hvað var þetta?“,“ sagði Klopp við Sky.

„Hvernig hann umgengst hina strákana og hvernig hann tók suður-amerísku útileikmennina náttúrulega undir væng sinn án þess að segja þeim hvað þeir ættu að gera, en er bara yndislegt hvernig þeir komu saman. Ég elskaði þetta frá því ég hitti hann fyrst og áður en við keyptum hann, eða þegar ég hitti pabba hans.“

„Fótboltaskilningurinn í fjölskyldu hans er einn og ef ekki sá besti sem ég hef séð. Pabbinn og frændur hans eru fyrrum fótboltamenn, hinir frændurnir eru atvinnumenn og bræður hans líka. Þannig þeir lifa fyrir fótbolta og það er ótrúlega gott.“


Leikmenn Liverpool hafa talað um það að Mac Allister sé í miklu uppáhaldi hjá Klopp en Þjóðverjinn segir að hann sé bara einn af mörgum.

„Auðvitað elska ég hann, en ég veit ekki hvar strákarnir fá það að hann sé uppáhaldið mitt því ég á marga þannig, en hann er klárlega einn af þeim,“ sagði Klopp.
Athugasemdir
banner
banner