Man Utd og Arsenal vilja Guehi - Osimhen gæti farið til Chelsea eða PSG - Geertruida gæti fylgt Slot til Liverpool
   þri 09. apríl 2024 16:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Real Madrid skoðar að reyna við nýjustu stjörnu Man Utd
Skoraði frábært mark gegn Liverpool og er nýbúinn að spila sinn fyrsta A-landsleik.
Skoraði frábært mark gegn Liverpool og er nýbúinn að spila sinn fyrsta A-landsleik.
Mynd: EPA
Real Madrid er óvænt að skoða möguleikann á því að reyna við Kobbie Mainoo leikmann Manchester United í sumar. Frá þessu greina spænskir miðlar.

Mainoo hefur skotist upp á stjörnuhimininn í vetur með frábærum frammistöðum inn á miðunni hjá United. Mainoo er átján ára Englendingur sem hefur skorað þrjú mörk fyrir United í vetur.

Mainoo skoraði sitt fyrsta mark á Old Trafford gegn Liverpool á sunnudag og var það af dýrarig gerðinni.

Real Madrid gæti þurft að fylla skörðin sem Luka Modric og Toni Kroos munu skilja eftir sig á næstunni en innan herbúða félagsins eru þó nokkrir kostir. Jude Bellingham, Eduardo Camavinga, Aurelien Tchouameni og Federico Valverde eru þar á meðal.

Florentino Perez, forseti Real Madrid, á, ef marka má fréttaflutning frá Spáni, að finnast möguleikinn á því að fá Mainoo til Real vera mjög áhugaverður.
Athugasemdir
banner
banner