Það er stíf dagskrá í íslenska boltanum í dag en undirbúningstímabilið er í fullum gangi.
Sex leikir fara fram í dag í fjórum mismunandi mótum. Lokaumferðin í A-riðli Reykjavíkurmóts kvenna verður spiluð í dag en Valur er svo gott sem búið að tryggja sér fyrsta sætið.
Stjarnan mætir Keflavík í Kórnum en sá leikur er hluti af A-riðli Faxaflóamótsins.
Inkasso-liðin Keflavík og Haukar mætast í Lengjubikarnum í Reykjaneshöllinni og einn leikur er á dagskrá í Kjarnafæðismótinu.
Hér að neðan má sjá leiki dagsins og leikstaði.
Leikir dagsins:
Reykjavíkurmót kvenna - A-riðill
16:15 HK/Víkingur-Þróttur R. (Egilshöll)
18:15 Fylkir-Fjölnir (Egilshöll)
20:15 Valur-KR (Egilshöll)
Faxaflóamót kvenna - A-riðill
14:30 Stjarnan-Keflavík (Kórinn)
Kjarnafæðismót - B deild
17:30 Dalvík/Reynir - Tindastóll (Boginn)
Lengjubikar karla A-deild - Riðill 4
12:00 Keflavík-Haukar (Reykjaneshöllin)
Athugasemdir