Sancho, Sesko, Mac Allister, Ten Hag, Raya og fleiri góðir koma við sögu
banner
   fim 09. maí 2024 22:59
Brynjar Ingi Erluson
Einkunnir frá Grikklandi: Marokkómaðurinn El Kaabi í skýjunum - Fyrirliði Villa skástur
Ayoub El Kaabi verður eftirsóttur í sumarglugganum
Ayoub El Kaabi verður eftirsóttur í sumarglugganum
Mynd: Getty Images
Ayoub El Kaabi, sóknarmaður Olympiakos, var besti maður vallarins er liðið komst í úrslit í Evrópukeppni í fyrsta sinn í sögu félagsins með því að vinna Aston Villa samanlagt, 6-2, í undanúrslitum Sambandsdeildar Evrópu í kvöld.

El Kaabi var langbesti leikmaður gríska liðsins í einvíginu en hann skoraði alls fimm mörk í leikjunum tveimur.

Hann fær 9 frá Sky Sports en Victor Iborra, Kostas Tzolakis og Quini fá 8.

John McGinn, fyrirliði Villa, var besti maður liðsins með 7, en restin af liðinu fékk 6.

OIympiakos: Tzolakis (8), Rodinei (7), Retsos (7), Carmo (7), Quini (8), Iborra (8), Hezze (7), Fortounis (7), Chiquinho (7), Podence (7), El Kaabi (9).
Varamenn: Masouras (6), Horta (6), Apostolopoulos (6)

Aston Villa: Martinez (6), Konsa (6), Carlos (6), Torres (6), Cash (6), McGinn (7), Luiz (6), Digne (6), Bailey (6), Watkins (6), Diaby (6).
Varamenn: Duran (6), Iroegbunam (6).
Athugasemdir
banner
banner
banner