Það er fátt sem kemur á óvart í byrjunarliði heimsmeistara Frakka fyrir leikinn gegn Íslandi í kvöld en hér má fara í beina textalýsingu frá leiknum.
Lucas Hernandez, vinstri bakvörður Bayern Munchen, er á bekknum en hann hefur verið að glíma við meiðsli.
Búist hafði verið við því að Hernandez myndi byrja en Lucas Digne, leikmaður Everton, er í liðinu í hans stað.

Lykilmennirnir Kylian Mbappe, Paul Pogba og Hugo Lloris eru allir fjarri góðu gamni vegna meiðsla.
Þrir leikmenn frá Bayern Munchen eru í byrjunarliði Frakka en þar er einnig að finna leikmenn frá Chelsea, Real Madrid, Barcelona, Juventus, Marseille og Everton.
Athugasemdir