Sænski þjálfarinn Janne Andersson var afar sáttur með frammistöðu liðsins í markalausa jafnteflinu gegn Spánverjum á Evrópumótinu í kvöld.
Svíar spiluðu varnarsinnað og sáu lítið af boltanum. Spænska liðið var 85 prósent með boltann en þrátt fyrir það tókst gestunum að skapa sér tvö stórhættuleg færi.
Alexander Isak átti skot sem Marcos Llorente bjargaði á línu og í stöng áður en Isak lagði upp dauðafæri fyrir Marcus Berg.
Varnarlínan stóð sína vakt vel en Janne segir að liðið verði að spila svona gegn yfirburðaliðum.
„Það er bara barnalegt að halda það að við getum komið hingað til Spánar í 32 stiga hita og yfirspilað Spánverja," sagði Andersson.
„Ég skammast mín ekki neitt fyrir þetta. Ef við viljum taka stig af svona liðum þá verðum við að spila á þennan hátt," sagði hann ennfremur.
Athugasemdir