„Bara rosalega ljúf þrjú stig, mjög ljúf," sagði Laufey Björnsdóttir, leikmaður HK/Víkings, eftir sigur á FH í kvöld.
Lestu um leikinn: FH 1 - 3 HK/Víkingur
„Mér fannst leikurinn svolítið kaflaskiptur, það er alltaf erfitt að spila á móti FH þær eru ótrúlega baráttuglaðar og mjög góðar og mér fannst þær vera yfir í fyrrihálfleiknum. Svo náðum við að koma til baka í seinni. Við núllstilltum okkur og mér fannst við betri í seinni,"
Aðspurð um þá erfiðu leiki sem þær eiga framundan sagði hún það er bara einn leikur í einu, markmiðið væri alltaf að safna stigum og fara í hvern leik til að gera sitt besta og safna stigum.
Viðtalið í heild má sjá hér að ofan.
Athugasemdir