Gauti gerði jöfnunarmark KV undir lokin. Hann er ekki orðinn þrítugur og á 39 leiki að baki með ÍBV í Pepsi-deildinni.
Vængir Júpíters 2 - 2 KV
1-0 Marinó Þór Jakobsson ('9)
1-1 Einar Már Þórisson ('13)
2-1 Jónas Breki Svavarsson ('63)
2-2 Gauti Þorvarðarson ('86)
Rautt spjald: Einar Bjarni Ómarsson, KV ('88)
Rautt spjald: Tumi Guðjónsson, Vængir ('90)
1-0 Marinó Þór Jakobsson ('9)
1-1 Einar Már Þórisson ('13)
2-1 Jónas Breki Svavarsson ('63)
2-2 Gauti Þorvarðarson ('86)
Rautt spjald: Einar Bjarni Ómarsson, KV ('88)
Rautt spjald: Tumi Guðjónsson, Vængir ('90)
Það var mikið fjör er Vængir Júpíters fengu KV í heimsókn á Fjölnisvöll í eina leik kvöldsins í 3. deildinni.
Marinó Þór Jakobsson kom Vængjunum yfir snemma leiks en Einar Már Þórisson var ekki lengi að jafna fyrir Vesturbæinga.
Jónas Breki Svavarsson kom heimamönnum aftur yfir í síðari hálfleik en Gauti Þorvarðarson náði að jafna undir lokin.
Einar Bjarni Ómarsson og Tumi Guðjónsson voru báðir sendir í sturtu undir lokin en 2-2 jafntefli staðreynd.
Liðin eru hnífjöfn í fjórða og fimmta sæti deildarinnar, með 17 stig og 4 mörk í plús. Topplið Dalvíkur/Reynis er með fimm stiga forystu og á leik til góða.
Markaskorarar af urslit.net
Athugasemdir