Man Utd og Arsenal vilja Guehi - Osimhen gæti farið til Chelsea eða PSG - Geertruida gæti fylgt Slot til Liverpool
   lau 30. mars 2024 13:15
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Pochettino um Mudryk: Hann hefur þroskast
Mynd: EPA

Mauricio Pochettino stjóri Chelsea er ánægður með þróun Mykahilo Mudryk leikmanns liðsins.


Mudryk hefur ekki náð að sanna sig almennilega í treyju Chelsea en hann var hetja úkraínska landsliðsins á dögunum þegar liðið vann það íslenska í úrslitaleik um sæti á EM.

„Ég hef tekið eftir því að hann hefur þroskast. Hann er gott dæmi um leikmann sem þarf tíma til að bæta sig og verða þroskaðari og átta sig á því hvar hann er," sagði Pochettino.

„Það þurfa allir mismikinn tíma en við viljum að þeir standi sig vel hjá okkur."


Athugasemdir
banner
banner
banner