Man Utd og Arsenal vilja Guehi - Osimhen gæti farið til Chelsea eða PSG - Geertruida gæti fylgt Slot til Liverpool
   lau 30. mars 2024 09:00
Ívan Guðjón Baldursson
Tottenham að skipta út njósnateyminu
Mynd: Getty Images
The Athletic greinir frá stórum breytingum innan herbúða Tottenham Hotspur.

Félagið er að vinna í því að bæta innviði sína og telja stjórnendur njósnateymið ekki vera nægilega gott.

Tottenham ætlar því að leyfa fimm af reyndustu njósnurunum sínum að róa á önnur mið og ráða nýja menn inn í staðinn sem stjórnin telur vera hæfari.

Ian Broomfield, Augusto Benito, Colin Jackson, Alessandro Sbrizzo og Dave Butler eru allir á útleið úr njósnateymi félagsins og má búast við fleiri breytingum á næstu mánuðum.

Tottenham ætlar að gera allt í sínu valdi til að vera samkeppnishæft í toppbaráttu enska boltans.
Athugasemdir
banner
banner