Manchester United er búið að jafna leikinn gegn Liverpool. Það var fyrirliðinn Bruno Fernandes, sem fékk harða gagnrýni fyrir frammistöðu sína í fyrri hálfleik, sem jafnaði leikinn.
Hann gerði það á 50. mínútu. Bruno komst í boltann inni í miðjuhringnum á vallarhelmingi Liverpool eftir skelfilega sendingu frá Jarrel Quansah miðverði Liverpool.
Hann gerði það á 50. mínútu. Bruno komst í boltann inni í miðjuhringnum á vallarhelmingi Liverpool eftir skelfilega sendingu frá Jarrel Quansah miðverði Liverpool.
Quansah var aftasti maður Liverpool og Bruno las sendinguna. Caoimhin Kelleher í marki Liverpool var ekki undirbúinn fyrir þessi mistök Quansah, Bruno sá tækifærið og lét vaða í fyrsta og kom boltanum framhjá þeim írska.
Þetta var fyrsta skot Manchester United í leiknum og það fór í markið. Ekki verðskuldað, en það er ekkert alltaf spurt að því.
Smelltu hér til að sjá markið.
Einnig er hægt að sjá það hér.
BRUNO FERNANDES SCORES AN INSANE GOAL WITH UNITED'S FIRST SHOT OF THE GAME! ????
— ESPN FC (@ESPNFC) April 7, 2024
WE HAVE A MATCH!! ???? pic.twitter.com/qXrCWrJHQb
Athugasemdir