Man Utd og Arsenal vilja Guehi - Osimhen gæti farið til Chelsea eða PSG - Geertruida gæti fylgt Slot til Liverpool
   fös 30. október 2015 10:00
Magnús Már Einarsson
Ranieri stóð við sitt og splæsti pizzu á liðið
Mynd: Getty Images
Claudio Ranieri, stjóri Leicester, lofaði því fyrr á tímabilinu að hann myndi splæsa pizzu á leikmenn liðsins um leið og þeir myndu ná að halda hreinu.

Leicester lagði Crystal Palace 1-0 um síðustu helgi og þá var komið að skuldadögum.

„Ég borga. Þeir verðskulda að fá pizzu og við borðum saman í dag," sagði Ranieri við fjölmiðla í gær.

Ranieri fór svo á pizzustað í Leicester þar sem leikmenn fengu sjálfir að spreyta sig við pizzugerð áður en þeir borðuðu.

Hér að neðan má sjá nokkrar myndir af pizzastaðnum.
Athugasemdir
banner
banner
banner