Gylfi Þór Sigurðsson hefur líklega sjaldan verið á meira skriði í ensku úrvalsdeildinni.
Hann er að spila frábærlega fyrir Everton og skoraði um helgina mark sem mun teljast eitt af mörkum tímabilsins.
Sjá einnig:
Gylfi tróð sokk í greinarhöfund staðarblaðsins í Leicester
Sky Sports hefur gefið út styrkleikaröðun yfir þá leikmenn sem eru að spila best í ensku úrvalsdeildinni um þessar mundir og þar trónir Gylfi nokkur Sigurðsson á toppnum. Hann er fyrir ofan leikmenn eins og Eden Hazard og Alexandre Lacazette.
Þá er Jóhann Berg Guðmundsson mjög ofarlega á listanum. Hann er í 11. sæti enda búinn að vera að spila frábærlega fyrir Burnley.
Virkilega flottir þessir Íslendingar!
Athugasemdir