Man Utd og Arsenal vilja Guehi - Osimhen gæti farið til Chelsea eða PSG - Geertruida gæti fylgt Slot til Liverpool
banner
   þri 08. janúar 2019 07:30
Ívan Guðjón Baldursson
Doucoure segir PSG að koma að ná í sig
Mynd: Getty Images
Abdoulaye Doucoure miðjumaður Watford gæti verið á förum frá félaginu í janúarglugganum.

Hann hefur verið orðaður við ýmis félög og er Paris Saint-Germain eitt þeirra. Doucoure viðurkennir að hann myndi glaður yfirgefa Watford til að ganga til liðs við Frakklandsmeistarana.

„Það er alltaf gaman að heyra þegar félög hafa áhuga á manni en ég er viss um að félag eins og PSG er að skoða marga leikmenn. Ég er klárlega ekki eini miðjumaðurinn sem þeir eru að skoða þó það séu í raun afar fáir með svipaðan leikstíl og ég," sagði Doucoure við RMC Sport.

„Ég yrði himinlifandi ef PSG myndi reyna að kaupa mig. Ég hef alltaf haldið með félaginu frá barnæsku og það mun ávalt eiga sérstakan stað í hjartanu mínu. Ég ólst upp í París, ég elska að koma heim.

„Svo eru bestu leikmenn heims í PSG. Væri pláss fyrir mig í byrjunarliðinu? Ég veit ekki, þeir þurfa að kaupa mig fyrst!"

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner