Andros Townsend, leikmaður Crystal Palace, átti mark desembermánaðar í ensku úrvalsdeildinni. Það ætti ekki að koma neinum á óvart.
Markið skoraði Townsend gegn Englandsmeisturum Manchester City í óvæntum 3-2 sigri Palace á Etihad-vellinum þann 22. desember.
Markið var hreint út sagt stórkostlegt. Townsend tók boltann á lofti fyrir utan teig og svoleiðis smellhitti hann.
Mögulega mark tímabilsins.
Smelltu hér til að sjá markið, en það fylgdi tísti frá ensku úrvalsdeildinni.
Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, og Virgil van Dijk, varnarmaður Liverpool, voru voru einnig verðlaunaðir fyrir desember-mánuð. Klopp var besti stjórinn í mánuðinum og Van Dijk besti leikmaðurinn.
Athugasemdir