Kvennalið Breiðabliks mætir Sparta Prag frá Tékklandi í fyrri leik liðanna í 32-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld.
Breiðablik vann sinn riðil í undankeppni Meistaradeildarinnar en liðið vann alla leiki sína í riðlinum.
Liðið mætir því sterku liði Sparta Prag frá Tékklandi í dag en leikurinn hefst klukkan 19:15 og fer fram á Kópavogsvelli.
Sara Björk Gunnarsdóttir verður þá í eldlínunni með þýska liðinu Wolfsburg gegn Mitrovica frá Kósóvó.
Leikur dagsins:
19:15 Breiðablik - Sparta Prag
16:00 Mitrovica - Wolfsburg
Athugasemdir