Inter og Juve vilja Alisson - Man Utd vill annan Bruno - Liverpool og Arsenal fylgjast með Bastoni
   mið 20. nóvember 2019 12:30
Magnús Már Einarsson
Stóri Sam: Mourinho getur látið Tottenham berjast um topp fjóra
Sam Allardyce hefur trú á því að Jose Mourinho geti komið liði Tottenham í gang á nýjan leik.

Tottenham er í 14. sæti í dag en Stóri Sam telur að Mourinho geti ennþá náð sæti í Meistaradeildinni á þessu tímabili.

„Hann bjó á hóteli þegar hann var hjá Manchester United og fólk hefur velt því fyrir sér hvort það hafi verið eitt af vandamálunum þar því hann var fjarri fjölskyldu sinni," sagði Allardyce.

„Núna er hann kominn aftur til fjölskyldunnar í London, hann elskar að vera þar. Hann er kominn til Tottenham sem er rissa félag fyrir hann. Hann þarf að bíta frá sér og reyna að vinna titla."

„Hann hefur klárlega hæfileikana og gæðin í hópnum til að láta Tottenham berjast og ég tel að þeir geti ennþá barist um sæti í topp fjórum."

Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 29 19 7 3 58 22 +36 64
2 Man City 28 18 5 5 57 25 +32 59
3 Man Utd 28 14 9 5 50 38 +12 51
4 Aston Villa 28 15 6 7 38 30 +8 51
5 Liverpool 29 14 6 9 48 39 +9 48
6 Chelsea 28 12 9 7 49 33 +16 45
7 Brentford 29 13 5 11 44 40 +4 44
8 Everton 29 12 7 10 34 33 +1 43
9 Fulham 28 12 4 12 40 42 -2 40
10 Bournemouth 29 9 13 7 44 46 -2 40
11 Sunderland 29 10 10 9 30 34 -4 40
12 Brighton 28 9 10 9 38 35 +3 37
13 Newcastle 28 10 6 12 40 42 -2 36
14 Crystal Palace 28 9 8 11 30 34 -4 35
15 Leeds 29 7 10 12 37 48 -11 31
16 Tottenham 28 7 8 13 38 43 -5 29
17 Nott. Forest 28 7 6 15 26 41 -15 27
18 West Ham 28 6 7 15 34 54 -20 25
19 Burnley 29 4 7 18 32 58 -26 19
20 Wolves 30 3 7 20 22 52 -30 16
Athugasemdir
banner
banner