Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 02. desember 2019 17:00
Magnús Már Einarsson
Innan við tveir mánuðir í endurkomu Laporte
Mynd: Getty Images
Aymeric Laporte, varnarmaður Manchester City, reiknar með að snúa aftur í liðið á næstu tveimur mánuðum.

Frakkinn fór í aðgerð á hné í lok ágúst og hefur verið frá keppni síðan þá.

Laporte hefur verið sárt saknað í vörn Manchester City en nú styttist í endurkomu hans.

„Endurhæfingin gengur mjög vel hjá mér. Ég þarf ennþá tíma en ég vona að ég geti komið til baka eins fljótt og hægt er og spilað með liðsfélögum mínum," sagði Laporte.

„Ég get ekki sagt nákvæmlega til um það hvenær það verður en þetta er einn og hálfur mánuður eða tveir mánuðir."
Athugasemdir
banner
banner