Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25102 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR18.09.2025, 14:52

Mourinho orðinn stjóri Benfica (Staðfest)

Benfica hefur ráðið Jose Mourinho sem stjóra til sumarsins 2027. Mourinho tekur við af Bruno Lage sem var rekinn eftir niðurlægjandi tap gegn Qarabag í Meistaradeildinni á þriðjudag. Það eru örfáar vikur síðan Mourinho var rekinn frá Fenerbahce, eftir einmitt að hafa tapað fyrir Benfica í forkeppni Meistaradeildarinnar.

FRÉTTIR18.09.2025, 06:00

Thelma Björg í Gróttu (Staðfest)

Hin 16 ára gamla Thelma Björg Gunnarsdóttir er gengin í raðir Gróttu frá Sindra. Þetta kemur fram í tilkynningu Gróttu á Instagram.

FRÉTTIR17.09.2025, 18:39

John Andrews tekur við KR (Staðfest)

John Andrews hefur verið ráðinn þjálfari meistaraflokks kvenna hjá KR næstu þrjú árin en KR-ingar tilkynna þetta á heimasíðu sinni í kvöld.

FRÉTTIR17.09.2025, 17:30

Bor leggur skóna á hilluna (Staðfest) - „Hefur reynst Dalvík frábærlega"

Borja Lopez Laguna hefur lagt skóna á hilluna en hann hefur leikið með Dalvík/Reyni síðustu sjö tímabil. Bor er 31 árs og lék 19 deildarleiki í sumar og skoraði þrjú mörk, eitt af þeim kom í leiknum gegn Víkingi Ólafsvík, síðasta leik ferilsins, síðasta laugardag. Hann hefur verið lykilmaður í liði Dalvíkur síðustu ár. Alls lék hann 162 KSÍ leiki með Dalvík/Reyni og skoraði 65 mörk. Hann var í liði ársins í 2. deild sumarið 2023 og liði ársins í 3. deildinni tímabilið á undan.

FRÉTTIR17.09.2025, 16:00

Alli Davors hættur með Kára (Staðfest)

Alexander Aron Davorsson er hættur sem þjálfari Kára eftir tvö ár í starfi á Akranesi. Kári er venslalið ÍA, liðið vann 3. deildina í fyrra og endaði í 9. sæti 2. deildar í sumar eftir að hafa unnið síðustu tvo leiki sína. Alli segir við Fótbolta.net að hann ætli sér ekki að verða í meistaraflokksþjálfun á næsta tímabili, ætli sér að sinna fjölskyldunni betur eftir sjö ár í meistaraflokksþjálfun. <i>„Þetta er besti staður sem maður þjálfar á, sérstaklega gott að vinna með Andra Júl og Aroni Ými. Það er erfitt að hætta,"</I> segir Alli sem á líka eftir að sakna þess að spila golf með Sigga Jóns alla daga.

FRÉTTIR17.09.2025, 15:02

Gústi Gylfa lætur af störfum hjá Leikni (Staðfest)

Leiknir í Breiðholti er komið í þjálfaraleit en ljóst er að Ágúst Gylfason verður ekki áfram þjálfari liðsins. Ágúst tók við Leikni í byrjun júní af Ólafi Hrannari Kristjánssyni sem var látinn taka pokann sinn. Ágúst, sem er með mikla reynslu úr þjálfun, tók við Leikni á botni Lengjudeildarinnar en náði því markmiði að halda liðinu í deildinni.

FRÉTTIR17.09.2025, 14:00

Frá Aftureldingu í starf hjá bandaríska sambandinu (Staðfest)

Toni Pressley, sem lék með Breiðabliki tímabilið 2023, er tekin við sem þjálfari U18 ára landsliðs kvenna í Bandaríkjunum. Toni lék 19 leiki með Blikum 2023 en fór svo í Mosfellsbæ þar sem hún var ráðin sem spilandi aðstoðarþjálfari í Lengjudeildinni. Toni þurfti að fara í krabbameinsmeðferð í annað sinn árið 2024 og spilaði því ekkert með Aftureldingu. Hún var líka aðstoðarþjálfari Aftureldingar á nýliðnu tímabili.

FRÉTTIR17.09.2025, 12:00

Benjamin Mendy í pólsku úrvalseildina (Staðfest)

Benjamin Mendy, fyrrum leikmaður Manchester City, er genginn í raðir Pogon Szczecin í pólsku úrvalsdeildinni. Mendy er 31 árs vinstri bakvörður sem kemur á frjálsri sölu eftir að samningi hans við FC Zurich var rift í sumar. Mendy yfirgaf City árið 2023 þegar samningur hans við félagið rann út. Hann hafði verið ákærður fyrir nauðgun og kynferðisbrot en var sýknaður.

FRÉTTIR17.09.2025, 10:48

Reynir Haralds leggur skóna á hilluna (Staðfest)

ÍR-ingurinn Reynir Haraldsson hefur lagt skóna á hilluna. Hann er þrítugur vinstri bakvörður sem lék lengstum með uppeldisfélaginu á sínum ferli. Hann lék einnig með HK, Létti og Fjölni á sínum ferli. Reynir lék 283 KSÍ leiki og skoraði í þeim 27 mörk. Í sumar lék hann tólf leiki með Fjölni, skipti yfir í ÍR í glugganum lék og fimm leiki með liðinu seinni hluta móts. Alls urðu leikirnir í B-deild 100 og mörkin fimm. Á sínum tíma lék Reynir fjóra leiki með U16 landsliðinu.

FRÉTTIR16.09.2025, 12:01

Emil Ásmunds leggur skóna á hilluna (Staðfest) - „Lék, lifði, barðist og þjáðist"

Fylkismaðurinn Emil Ásmundsson hefur lagt skóna á hilluna. Hann er þrítugur miðjumaður sem uppalinn er hjá Fylki og spilaði lengst á ferlinum með uppeldisfélaginu. Ungur að árum fór hann til Brighton á Englandi og var í þrjú ár. Eftir tímabilið 2019 samdi Emil við KR en meiddist illa, ekki í eina skiptið á ferlinum, og spilaði ekki deildarleik fyrr en í september 2021. Hann sneri svo aftur í Fylki fyrir tímabilið 2022 og lék síðustu fjögur tímablin á ferlinum með uppeldisfélaginu. Hann missti af byrjuninni á þessu tímabili vegna meiðsla, náði að spila ellefu leiki og skoraði í þeim þrjú mörk.

FRÉTTIR14.09.2025, 13:42

Selles rekinn frá Sheffield United (Staðfest)

Spænski stjórinn Ruben Selles hefur verið látinn taka poka sinn hjá Sheffield United eftir aðeins fimm leiki. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu í dag.

FRÉTTIR14.09.2025, 09:30

Farinn aftur til Tyrklands frá Chelsea (Staðfest)

David Datro Fofana er genginn til liðs við Fatih Karagümrük frá Chelsea með kaupmöguleika. Fofana var ekki inn í myndinni hjá Enzo Maresca en hann var orðaður við Preston og Charlton á gluggadeginum.

FRÉTTIR13.09.2025, 16:06

Lengjudeildin: Þórsarar unnu deildina (Staðfest) - Selfoss féll

Þór er komið upp í Bestu deild karla eftir að hafa unnið Þrótt, 2-1, í lokaumferð Lengjudeildarinnar í Laugardalnum í dag. Selfoss er fallið eftir 4-1 tap gegn Keflavíkingum. Njarðvík, Þróttur, HK og Keflavík fara öll í umspil.

FRÉTTIR12.09.2025, 12:15

Emanuel Emegha í Chelsea (Staðfest)

Chelsea hefur gengið frá samningi við sóknarmanninn Emanuel Emegha frá Strasbourg í Frakklandi. Leikmaðurinn mun skipta yfir til Chelsea árið 2026, en ekki kemur fram hvort það verði í janúar eða næsta sumar.

FRÉTTIR11.09.2025, 22:00

Donnarumma: Pep er besti þjálfari heims

Ítalski landsliðsmarkvörðurinn Gianluigi Donnarumma var keyptur til Manchester City í sumar og er hann mjög stoltur af því að spila fyrir enska stórveldið eftir fjögur ár hjá Paris Saint-Germain.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.