Man Utd og Arsenal vilja Guehi - Osimhen gæti farið til Chelsea eða PSG - Geertruida gæti fylgt Slot til Liverpool
   þri 02. apríl 2024 20:42
Jóhann Þór Hólmgrímsson
England: Calvert-Lewin bjargaði mikilvægu stigi fyrir Everton - Jafnt hjá Burnley og Wolves
Dominic Calvert-Lewin
Dominic Calvert-Lewin
Mynd: Getty Images
Ait-Nouri
Ait-Nouri
Mynd: Getty Images

Everton nældi í dýrmætt stig í fallbaráttunni þegar liðið heimsótti Newcastle í kvöld.


Alexander Isak kom Newcastle yfir snemma leiks eftir undirbúning Harvey Barnes sem er heitur þessa dagana eftir tvennu í endurkomusigrinum gegn West Ham um helgina.

Undir lok leiksins fékk Everton vítaspyrnu þegar Paul Dummett reif Ashley Young niður í teignum.

Dominic Calvert-Lewin tók spyrnuna og skoraði og tryggði Everton gríðarlega dýrmætt stig.

Nottingham Forest lagði Fulham en Marco Silva gerði þrefalda breytingu á liði Fulham eftir hálftíma leik þar sem andstæðingarnir voru komnir með 2-0 forystu.

Það var síðan Morgan Gibbs-White sem innsiglaði sigurinn undir lok fyrri hálfleiks.

Burnley náði forystunni gegn Wolves en Rayan Ait-Nouri jafnaði metin og tryggði Wolves stig. Þetta var 29 markið sem Burnley fær á sig í fyrri hálfleik á tímabilinu í 31 leik.

Justin Kluivert kom inn á sem varamaður og tryggði Bournemouth sterkan sigur á Crystal Palace en Eberechi Eze skoraði fyrir Palace í fyrri hálfleik eftir en markið var dæmt af þar sem Jean-Phillipe Mateta var hársbreidd fyrir innan varnarlínu Bournemouth í aðdragandanum.

Burnley 1 - 1 Wolves
1-0 Jacob Bruun Larsen ('37 )
1-1 Rayan Ait Nouri ('45 )

Bournemouth 1 - 0 Crystal Palace
1-0 Justin Kluivert ('79 )

Nott. Forest 3 - 1 Fulham
1-0 Callum Hudson-Odoi ('9 )
2-0 Chris Wood ('19 )
3-0 Morgan Gibbs-White ('45 )
3-1 Tosin Adarabioyo ('49 )

Newcastle 1 - 1 Everton
1-0 Alexander Isak ('15 )
1-1 Dominic Calvert-Lewin ('88 , víti)


Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 35 25 5 5 85 28 +57 80
2 Man City 34 24 7 3 82 32 +50 79
3 Liverpool 35 22 9 4 77 36 +41 75
4 Aston Villa 35 20 7 8 73 52 +21 67
5 Tottenham 33 18 6 9 67 52 +15 60
6 Man Utd 34 16 6 12 52 51 +1 54
7 Newcastle 34 16 5 13 74 55 +19 53
8 West Ham 35 13 10 12 56 65 -9 49
9 Chelsea 33 13 9 11 63 59 +4 48
10 Bournemouth 35 13 9 13 52 60 -8 48
11 Wolves 35 13 7 15 48 55 -7 46
12 Brighton 34 11 11 12 52 57 -5 44
13 Fulham 35 12 7 16 51 55 -4 43
14 Crystal Palace 35 10 10 15 45 57 -12 40
15 Everton 35 12 8 15 37 48 -11 36
16 Brentford 35 9 8 18 52 60 -8 35
17 Nott. Forest 35 7 9 19 42 62 -20 26
18 Luton 35 6 7 22 48 77 -29 25
19 Burnley 35 5 9 21 38 70 -32 24
20 Sheffield Utd 35 3 7 25 34 97 -63 16
Athugasemdir
banner
banner
banner