Man Utd og Arsenal vilja Guehi - Osimhen gæti farið til Chelsea eða PSG - Geertruida gæti fylgt Slot til Liverpool
banner
   mið 03. apríl 2024 21:44
Brynjar Ingi Erluson
Ítalski bikarinn: Glæsimark Mandragora kom Fiorentina í góða stöðu
Rolando Mandrogara smell hitti boltann
Rolando Mandrogara smell hitti boltann
Mynd: Getty Images
Fiorentina 1 - 0 Atalanta
1-0 Rolando Mandragora ('31 )

Rolando Mandragora var hetja Fiorentina sem lagði Atalanta að velli, 1-0, í fyrri leik liðanna í undanúrslitum ítalska bikarsins í Flórens í kvöld.

Mandragora skoraði eina markið á 31. mínútu leiksins. Ítalski miðjumaðurinn fékk boltann um 30 metrum frá markinu og þrumaði honum efst upp í samskeytin og í netið.

Eitt af flottustu mörkum tímabilsins og dugði það til að vinna leikinn 1-0.

Þetta var aðeins fyrri viðureign liðanna en þau mætast aftur á heimavelli Atalanta í Bergamó þann 24. apríl.

Sjáðu markið hjá Mandragora
Athugasemdir
banner
banner