Man Utd og Arsenal vilja Guehi - Osimhen gæti farið til Chelsea eða PSG - Geertruida gæti fylgt Slot til Liverpool
   mið 03. apríl 2024 20:56
Brynjar Ingi Erluson
Önnur þrenna Foden á tímabilinu
Phil Foden er að eiga geggjað tímabil með Man City
Phil Foden er að eiga geggjað tímabil með Man City
Mynd: Getty Images
Phil Foden, leikmaður Manchester City á Englandi, er kominn með þrennu gegn Aston Villa á Etihad en þetta er önnur þrenna hans í deildinni á þessari leiktíð.

Foden er að eiga sitt besta tímabil undir stjórn Pep Guardiola og kemur vel til greina sem leikmaður ársins.

Englendingurinn skoraði fyrsta mark sitt undir lok fyrri hálfleiks, beint úr aukaspyrnu, áður en hann tvöfaldaði forystuna þegar rúmur klukkutími var liðinn.

Þegar tuttugu mínútur voru eftir fullkomnaði hann þrennu sína og gerði þar 14. deildarmark sitt á tímabilinu. Hægt er að sjá öll mörkin hér fyrir neðan.

Staðan í leiknum er 4-1 fyrir Man City, sem er örugglega að landa sigri á Etihad.

Aukaspyrnumark Foden
Annað mark Foden
Þrennan fullkomnuð
Athugasemdir
banner
banner
banner