Man Utd og Arsenal vilja Guehi - Osimhen gæti farið til Chelsea eða PSG - Geertruida gæti fylgt Slot til Liverpool
banner
   mið 03. apríl 2024 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Óskar Hrafn að fá leikmann frá AGF
Mynd: Haugesund

Óskar Hrafn Þorvaldsson þjálfari Haugesund í Noregi er að næla í leikmann frá danska liðinu AGF.


Mathias Sauer er á leið til Haugesund á láni frá AGF en Sauer er tvítugur sóknarsinnaður miðjumaður.

Sancheev Manoharan aðstoðarmaður Óskars þekkir til Sauer en hann starfaði áður hjá AGF.

Norska deildin hófst um helgina þar sem Haugesund vann dramatískan sigur á Odd 2-1 en sigurmarkið kom þegar tvær mínútur voru komnar framyfir venjulegan leiktíma.

Óskar Hrafn tók við Haugesund undir lok síðasta árs eftir að hafa náð frábærum árangri með Breiðabliki undanfarin ár.


Athugasemdir
banner
banner
banner