Man Utd og Arsenal vilja Guehi - Osimhen gæti farið til Chelsea eða PSG - Geertruida gæti fylgt Slot til Liverpool
   fim 04. apríl 2024 14:18
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
„Hefur spurt mig að því hvernig er að vera í Barcelona"
Bernardo Silva fáanlegur fyrir 50 milljónir punda í sumar
Bernardo Silva.
Bernardo Silva.
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Portúgalinn Bernardo Silva verður fáanlegur í sumar fyrir 50 milljónir punda þegar riftunarverð í samningi hans hjá Manchester City tekur gildi í sumar.

Miðjumaðurinn öflugi hefur verið orðaður við Barcelona síðustu árin og það er líklegur áfangastaður ef hann verður á ferðinni í sumar.

Joao Felix, leikmaður Barcelona, segist mikið hafa talað við miðjumanninn um að koma til Katalóníu og vonast til að það verði að veruleika.

„Ef ég væri Deco (yfirmaður fótboltamála hjá Barcelona), þá myndi ég klárlega ná í Bernardo Silva," sagði Felix við Jijantes.

„Hafiði séð hann spila fótbolta? Hann er enn betri manneskja. Hann hefur spurt mig að því hvernig er að vera í Barcelona. Ég sagði að það væri mjög gott fyrir hann að koma hingað."


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner