Man Utd og Arsenal vilja Guehi - Osimhen gæti farið til Chelsea eða PSG - Geertruida gæti fylgt Slot til Liverpool
   fim 04. apríl 2024 21:36
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Klopp um markið hjá Mac Allister: Alveg geðveikt
Mynd: Getty Images

Alexis Mac Allister skoraði stórkostlegt mark þegar Liverpool lagði Sheffield United í kvöld.


Liverpool var í vandræðum í leiknum en Mac Allister skoraði með stórkostlegu skoti þegar skammt var til loka venjulegs leiktíma og kom liðinu yfir áður en Cody Gakpo gulltryggði liðinu sigurinn.

Jurgen Klopp stjóri Liverpool var í skýjunum með markið hjá Mac Allister.

„Hann er mjög góður leikmaður, í fyrri hálfleik var hann að spila í sexunni en við vissum að við gætum fært hann upp völlinn. Svo skorar hann svona mark, hann er búinn að skora tvö stórkostleg mörk á tímabilinu. Svo kom aukaspyrnan strax í kjölfarið, alveg geðveikt, þvílíkur leikmaður," sagði Klopp.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner