Man Utd og Arsenal vilja Guehi - Osimhen gæti farið til Chelsea eða PSG - Geertruida gæti fylgt Slot til Liverpool
   fim 04. apríl 2024 21:53
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Palmer: Þetta var bilaður leikur
Mynd: EPA

Cole Palmer var hetja Chelsea þegar liðið vann ótrúlegan sigur á Manchester United í kvöld.


Chelsea var 3-2 undir þegar 98. mínútur voru komnar á klukkuna en þá fékk liðið vítaspyrnu. Palmer skoraði úr henni en það var annað mark hans í leiknum eftir að hann kom liðinu í 2-0 einnig með marki úr vítaspyrnu.

Stuttu síðar fékk Chelsea hornspyrnu og Palmer skoraði í kjölfarið og tryggði liðinu ótrúlegan sigur.

„Þetta var bilaður leikur. Ég vissi ekki hvað ég átti að gera þegar ég skoraði, ég hljóp bara í hringi. Þrenna er þrenna, þetta var mín fyrsta.  Ég er mjög ánægður með það," sagði Palmer.


Athugasemdir
banner
banner
banner