Man Utd og Arsenal vilja Guehi - Osimhen gæti farið til Chelsea eða PSG - Geertruida gæti fylgt Slot til Liverpool
banner
   fim 04. apríl 2024 22:46
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Spánn: Dýrmætur sigur Valencia í Evrópubaráttunni
Mynd: EPA

Granada CF 0 - 1 Valencia
0-1 Andre Almeida ('77 )


Varamaðurinn Andre Almeida tryggði Valencia nauman sigur á Granada í spænsku deildinni í kvöld.

Hann skoraði eina mark leiksins þegar skammt var til loka venjulegs leiktíma. Boltinn barst til hans eftir hornspyrnu og hann negldi boltanum í netið.

Hann meiddist snemma á tímabilinu en þetta var aðeins annar leikurinn hans í endurkomunni.

Valencia er 7. sæti með 44 stig, fimm stigum á eftir Real Sociedad sem situr í 6. sætinu sem gefur þátttökurétt í Sambandsdeildinni á næstu leiktíð. Granada er hins vegar í vandræðum, í næst neðsta sæti með 14 stig, 14 stigum frá öruggu sæti.


Athugasemdir
banner
banner