Man Utd og Arsenal vilja Guehi - Osimhen gæti farið til Chelsea eða PSG - Geertruida gæti fylgt Slot til Liverpool
   fim 04. apríl 2024 18:33
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ten Hag að hvíla Rashford fyrir stórleik helgarinnar
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Marcus Rashford er á bekknum þegar Manchester United heimsækir Chelsea í kvöld.


Rashford skoraði í þremur leikjum í röð fyrir landsleikjahléið og var í byrjunarliðinu þegar liðið gerði jafntefli gegn Brentford um helgina en hefur fengið sér sæti á bekknum fyrir leik kvöldsins.

Man Utd mætir Liverpool í stórleik helgarinnar á Old Trafford á sunnudaginn en Erik ten Hag stjóri liðsins sagði fyrir leikinn í kvöld að hann væri að hvíla leikmanninn fyrir leik helgarinnar.

„Ég ákvað að hafa Marcus Rashford á bekknum til að halda honum og liðinu fersku í gegnum erfiðan kafla og annar stórleikur á sunnudaginn," sagði Ten Hag við TNT.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner