Man Utd og Arsenal vilja Guehi - Osimhen gæti farið til Chelsea eða PSG - Geertruida gæti fylgt Slot til Liverpool
   fim 04. apríl 2024 07:30
Brynjar Ingi Erluson
Vinstri bakvörður Nice á blaði hjá Man Utd
Mynd: Getty Images
Franski vinstri bakvörðurinn Melvin Bard er á blaði hjá Manchester United fyrir sumargluggann en þetta kemur fram í Evening Standard.

Bard er 23 ára gamall og spilar með Nice í heimalandinu en hann hefur heillað í frönsku deildinni á þessu tímabili.

Evening Standard hefur heimildir fyrir því að Bard sé á lista hjá enska úrvalsdeildarfélaginu Manchester United.

Félagið vill fá inn vinstri bakvörð fyrir næstu leiktíð en það hefur verið í miklum vandræðum með þá stöðu á tímabilinu. Luke Shaw og Tyrell Malacia hafa verið mikið frá vegna meiðsla.

Talið er að það væri fremur auðvelt fyrir United að fá Bard frá Nice í ljósi þess að Sir Jim Ratcliffe, nýr hluteigandi í United, er einnig eigandi franska úrvalsdeildarliðsins.

Annar varnarmaður Nice, Jean-Clair Todibo, hefur einnig verið orðaður við United síðustu mánuði.
Athugasemdir
banner
banner