Man Utd og Arsenal vilja Guehi - Osimhen gæti farið til Chelsea eða PSG - Geertruida gæti fylgt Slot til Liverpool
banner
   fös 05. apríl 2024 18:26
Brynjar Ingi Erluson
Zaniolo gæti snúið aftur til Ítalíu í sumar
Mynd: Getty Images
Ítalski leikmaðurinn Nicolo Zaniolo gæti verið aftur á leið í ítalska boltann í sumar en Napoli hefur mikinn áhuga á að landa honum. Þetta segir ítalski blaðamaðurinn Gianluca Di Marzio.

Zanilo er 24 ára gamall sóknartengiliður sem er á láni hjá Aston Villa frá Galatasaray.

Villa mun ekki kaupa hann frá tyrkneska félaginu eftir tímabilið og er því ljóst að hann mun finna sér nýtt félag í sumar.

Di Marzio segir að Giovanni Manna, verðandi yfirmaður íþróttamála hjá Napoli, sé mikill áhugamaður um Zaniolo og að eitt af fyrstu verkefnum hans sé að fá leikmanninn aftur til Ítalíu.

Zaniolo vill ólmur snúa aftur til heimalandsins eftir rúmlega ársdvöl í Tyrklandi og á Englandi.
Athugasemdir
banner
banner
banner