Varane, Diaz, Matip, Yamal, Davies og Rashford koma við sögu
   mið 06. mars 2024 15:45
Elvar Geir Magnússon
Salah farinn að æfa að fullu - Stutt í stórleikinn
Mohamed Salah á æfingasvæði Liverpool.
Mohamed Salah á æfingasvæði Liverpool.
Mynd: Getty Images
Egypski sóknarmaðurinn Mohamed Salah er farinn að æfa með Liverpool af fullum krafti en það er stutt í toppslaginn gegn Manchester City, sá leikur verður á sunnudaginn.

Salah hefur aðeins spilað tvo leiki fyrir Liverpool á almanaksárinu 2024. Hann skoraði tvívegis í 4-2 sigri gegn Newcastle á nýársdag og skoraði eftir að hafa komið af bekknum í 4-1 sigri gegn Brentford þann 17. febrúar.

Salah meiddist svo í Afríkukeppninni í janúar og hefur neyðst til að vera í stúkunni og horfa á meðan Liverpool hefur unnið deildabikarinn, komist áfram í FA-bikarnum og haldið áfram öflugu skriði í deildinni.

Hann gæti hinsvegar snúið aftur í leiknum gegn Sparta Prag í Evrópudeildinni, 16-liða úrslitum, á fimmtudag.

Markvörðurinn Caoimhin Kelleher tók einnig þátt í æfingunni af fullum krafti en sögusagnir voru á samfélagsmiðlum um að hann væri eitthvað meiddur. Þær virðast ekki á rökum reistar.

Liverpool flýgur til Prag og mun Jurgen Klopp sitja fyrir svörum á fréttamannafundi í kvöld þar sem hann mun vafalítið vera spurður út í stöðuna á Salah.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 34 24 5 5 82 26 +56 77
2 Man City 33 23 7 3 80 32 +48 76
3 Liverpool 35 22 9 4 77 36 +41 75
4 Aston Villa 34 20 6 8 71 50 +21 66
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Man Utd 33 16 5 12 51 50 +1 53
7 Newcastle 33 15 5 13 69 54 +15 50
8 West Ham 35 13 10 12 56 65 -9 49
9 Chelsea 32 13 8 11 61 57 +4 47
10 Bournemouth 34 12 9 13 49 60 -11 45
11 Brighton 33 11 11 11 52 54 -2 44
12 Wolves 34 12 7 15 46 54 -8 43
13 Fulham 34 12 6 16 50 54 -4 42
14 Crystal Palace 34 10 9 15 44 56 -12 39
15 Brentford 34 9 8 17 52 59 -7 35
16 Everton 34 11 8 15 36 48 -12 33
17 Nott. Forest 34 7 9 18 42 60 -18 26
18 Luton 34 6 7 21 47 75 -28 25
19 Burnley 34 5 8 21 37 69 -32 23
20 Sheffield Utd 34 3 7 24 33 92 -59 16
Athugasemdir
banner
banner
banner