Man Utd og Arsenal vilja Guehi - Osimhen gæti farið til Chelsea eða PSG - Geertruida gæti fylgt Slot til Liverpool
   lau 06. apríl 2024 14:20
Aksentije Milisic
Benzema: Ég er ekki sá sami og ég var hjá Real
Mynd: Getty Images

Karim Benzema hefur ekki átt sjö dagana sæla í Sádi-Arabíu en honum hefur ekki tekist að skora fyrir Al Ittihad síðan í desember mánuði.


Frakkinn er goðsögn hjá Real Madrid þar sem hann skoraði eins og óður maður en hann var spurður út í það hvað orsakar þessa markaþurrð í Sádi-Arabíu.

„Ég er ekki sami Benzema og ég var hjá Real Madrid því þetta er allt annar leikur," sagði hann.

„Þetta eru ekki sömu leikmenn, ég þarf hjálp á vellinum. Ég þarf marga hluti. Ég get ekki unnið leikina einn míns liðs."

„Við sjáum til hvað gerist í framtíðinni, það eru mikið að fréttum í gangi. Við sjáum til,"
 sagði Benzema þegar hann var spurður út í framtíð sína hjá Al Ittihad.


Athugasemdir
banner
banner
banner