Man Utd og Arsenal vilja Guehi - Osimhen gæti farið til Chelsea eða PSG - Geertruida gæti fylgt Slot til Liverpool
   lau 06. apríl 2024 16:02
Aksentije Milisic
England: Sex marka jafntefli á Villa Park - Ward-Prowse skoraði beint úr hornspyrnu
Ollie Watkins gerði tvennu.
Ollie Watkins gerði tvennu.
Mynd: Getty Images
Prowse.
Prowse.
Mynd: Getty Images

Fimm leikjum var að ljúka í ensku úrvalsdeildinni en eftir nokkuð rólega fyrri hálfleiki færðist svo sannarlega líf og fjör í leikina í þeim síðari.


Á Villa Park í Birmingham fór fram ótrúlegur leikur þegar Brentford kom í heimsókn. Ollie Watkins og Morgan Rogers komu heimamönnum í tveggja manna forystu en þá settu gestirnir í fluggírinn.

Þeir skoruðu þrjú mörk á níu mínútna kafla og komust í forystu, algjörlega magnað. Villa gafst ekki upp og náði Watkins að bjarga stiginu með sínu öðru marki þegar tíu mínútur voru til leiksloka.

West Ham vann öflugan útisigur á Wolves þar sem James Ward-Prowse gerði ótrúlega sigurmark beint úr hornspyrnu. Hann hreinlega smellti boltanum í fjærhornið frá hornfánanum.

Þá tryggði Carlon Morris nýliðunum í Luton þrjú risa stig undir lok leiks gegn Bournemouth.

Everton vann Burnley þar sem Dominic Calvert-Lewin gerði sigurmarkið eftir skelfileg mistök hjá markverði gestanna. Dara O'Shea fékk rautt spjald í liði Burnley í síðari hálfleiknum.

Þá vann Newcastle öflugan útisigur á Fulham en öll úrslitin og markaskorarana má sjá hér fyrir neðan.

Everton 1 - 0 Burnley
1-0 Dominic Calvert-Lewin ('45 )
Rautt spjald: Dara O'Shea, Burnley ('67)

Luton 2 - 1 Bournemouth
0-1 Marcus Tavernier ('52 )
1-1 Jordan Clark ('73 )
2-1 Carlton Morris ('90 )

Aston Villa 3 - 3 Brentford
1-0 Ollie Watkins ('39 )
2-0 Morgan Rogers ('46 )
2-1 Mathias Jorgensen ('59 )
2-2 Bryan Mbeumo ('61 )
2-3 Yoane Wissa ('68 )
3-3 Ollie Watkins ('80 )

Fulham 0 - 1 Newcastle
0-1 Bruno Guimaraes ('81 )

Wolves 1 - 2 West Ham
1-0 Pablo Sarabia ('33 , víti)
1-1 Lucas Paqueta ('73 , víti)
1-2 James Ward-Prowse ('84 )


Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 35 25 5 5 85 28 +57 80
2 Man City 34 24 7 3 82 32 +50 79
3 Liverpool 35 22 9 4 77 36 +41 75
4 Aston Villa 35 20 7 8 73 52 +21 67
5 Tottenham 33 18 6 9 67 52 +15 60
6 Man Utd 34 16 6 12 52 51 +1 54
7 Newcastle 34 16 5 13 74 55 +19 53
8 West Ham 35 13 10 12 56 65 -9 49
9 Chelsea 33 13 9 11 63 59 +4 48
10 Bournemouth 35 13 9 13 52 60 -8 48
11 Wolves 35 13 7 15 48 55 -7 46
12 Brighton 34 11 11 12 52 57 -5 44
13 Fulham 35 12 7 16 51 55 -4 43
14 Crystal Palace 35 10 10 15 45 57 -12 40
15 Everton 35 12 8 15 37 48 -11 36
16 Brentford 35 9 8 18 52 60 -8 35
17 Nott. Forest 35 7 9 19 42 62 -20 26
18 Luton 35 6 7 22 48 77 -29 25
19 Burnley 35 5 9 21 38 70 -32 24
20 Sheffield Utd 35 3 7 25 34 97 -63 16
Athugasemdir
banner
banner
banner