Man Utd og Arsenal vilja Guehi - Osimhen gæti farið til Chelsea eða PSG - Geertruida gæti fylgt Slot til Liverpool
banner
   sun 07. apríl 2024 13:46
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
17 ára í fyrsta sinn í hópnum hjá United
Amass með U17 landsliðinu.
Amass með U17 landsliðinu.
Mynd: Getty Images
Á meðal varamanna hjá Manchester United gegn Liverpool má sjá nafnið Harry Amass. Hann er í fyrsta sinn í leikmannahópnum hjá United á tímabilinu.

Hann er 17 ára vinstri bakvörður sem United kepyti frá Watford síðasta sumar. Hann hefur spilað með U18 liði United á tímabilinu, skorað eitt mark og lagt upp þrjú í fjórtán leikjum samkvæmt Transfermarkt.

Mikið er um meiðsli í varnarlínu United og er Amass eini eiginlegi vinstri bakvörðurinn í hópnum. Þeir Luke Shaw og Tyrell Malacia eru meiddir og er hægri bakvörðurinn Diogo Dalot í byrjunarliðinu sem vinstri bakvörður.

Amass á að baki fimm leiki fyrir U17 landslið Englands. Leikurinn gegn Liverpool hefst klukkan 14:30.



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner