Man Utd og Arsenal vilja Guehi - Osimhen gæti farið til Chelsea eða PSG - Geertruida gæti fylgt Slot til Liverpool
   mán 08. apríl 2024 19:02
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Arteta tók vel í spurninguna en svaraði henni ekki
Mynd: John Walton

Átta liða úrslit Meistaradeildarinnar hefjast á morgun en Arsenal fær Bayern Munchen í heimsókn og Man City heimsækir Real Madrid.


Bayern hefur verið í miklum vandræðum í þýsku deildinni en Arsenal er komið á toppinn í úrvalsdeildinni eftir að Liverpool gerði jafntefli í erkifjendaslagunum á Old Trafford um helgina.

Leverkusen er á toppi þýsku deildarinnar undir stjórn spánverjans Xabi Alonso en landi hans, Mikel Arteta stjóri Arsenal var spurður að því á fréttamannafundi fyrir leikinn á morgun hvort hann hafi fengið ráð frá Alonso hvernig ætti að vinna Bayern.

„Frábær spurning en ég ætla ekki að svara henni," sagði Arteta.

Leverkusen fór illa með Bayern og vann 3-0 í síðari leik liðanna í deildinni fyrr á þessu ári.


Athugasemdir
banner