Annað kvöld fer fyrri leikur Real Madrid og Manchester City fram í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu.
City er á leið til spænsku höfuðborgarinnar en stóru fréttirnar í leikmannahópnum eru þær að hvorki Kyle Walker né Nathan Ake eru um borð í flugvélinni.
City er á leið til spænsku höfuðborgarinnar en stóru fréttirnar í leikmannahópnum eru þær að hvorki Kyle Walker né Nathan Ake eru um borð í flugvélinni.
Walker hefur ekki spilað síðan hann meiddist í siðasta landsleikjaglugga og Ake hefur ekki spilað síðan hann meiddist um páskana.
Leikur Real Madrid og City verður klukkan 19 annað kvöld.
Leikmannahópur Man City: Ruben Dias, John Stones, Mateo Kovacic, Erling Haaland, Jack Grealish, Jeremy Doku, Rodrigo, Kevin De Bruyne, Stefan Ortega Moreno, Julian Alvarez, Bernardo Silva, Sergio Gomez, Josko Gvardiol, Manuel Akanji, Matheus Nunes, Ederson, Scott Carson, Phil Foden, Oscar Bobb, Mahamadou Susoho, Rico Lewis.
Athugasemdir