Man Utd og Arsenal vilja Guehi - Osimhen gæti farið til Chelsea eða PSG - Geertruida gæti fylgt Slot til Liverpool
   þri 09. apríl 2024 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ancelotti kvíðinn fyrir leiknum gegn Man City
Mynd: EPA

Real Madrid fær Manchester City í heimsókn í fyrri leik liðanna í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld.


Carlo Ancelotti stjóri Real Madrid greindi frá því í aðdraganda leiksins að hann væri mjög stressaður fyrir leiknum.

„Já mjög stressaður. Klukkutímarnir fyrir leikinn er tími sem þú þjáist. Ég var að hugsa þetta um daginn, maður þjáist eftir töp og finnur hamingju þegar maður vinnur en það er ekki svoleiðis, sigur er léttir," sagði Ancelotti.

„Það er hamingja að vinna titla, einstaka sigur er léttir. Þú ert rólegri og glaðari dagana á eftir en þjáning er hluti af starfinu. Það heldur manni gangandi, það er bensín fyrir mig."


Athugasemdir
banner
banner
banner