Man Utd og Arsenal vilja Guehi - Osimhen gæti farið til Chelsea eða PSG - Geertruida gæti fylgt Slot til Liverpool
   þri 09. apríl 2024 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Joao Felix: Held ég sé búinn að sannfæra Bernardo Silva
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Joao Felix leikmaður Barcelona hefur undanfarið verið að tjá sig um Bernardo Silva leikmann Manchester City en hann telur að Silva muni ganga til liðs við spænska liðið í sumar.


Riftunarverð í samningi Silva tekur gildi í sumar en það hljóðar upp á 50 milljónir punda en Barcelona er í miklum fjárhagsvandræðum svo mikið þarf að gerast til að leikmaðurinn fari til spænska liðsins.

„Ég held ég sé búinn að sannfæra Silva um að koma til Barcelona. En það er ekki í hans höndum núna. Hann spurði mig út í staði til að búa og um veitingastaði. Ef hann kemur verðu Barcelona ánægt," sagði Felix.

Sjálfur er Felix á láni hjá Barcelona frá Atletico Madrid en hann vill eindregið vera áfram í herbúðum liðsins.


Athugasemdir
banner