Bayern reynir aftur við Walker - Neves til Man Utd?
   mið 17. apríl 2019 20:44
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
England: Rakel með glæsilega stoðsendingu í stórsigri
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Rakel Hönnudóttir átti stoðsendingu þegar Reading vann 5-0 sigur á Yeovil í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.

Rakel var í byrjunarliði Reading sem komst yfir eftir um hálftíma þegar Fara Williams skoraði fallegt mark.

Snemma í seinni hálfleiknum skoraði Lauren Bruton annað mark Reading. Rakel lagði upp það mark, en stoðsendingin hjá íslensku landsliðskonunni var stórkostleg. Markið má sjá hér að neðan.

Rakel fór af velli þegar rétt rúmar 10 mínútur voru eftir. Rakel fór meidd af velli. Vonandi er það ekki alvarlegt.

Reading bætti við þremur mörkum áður en yfir lauk og 5-0 sigur Reading staðreynd. Reading er í sjötta sæti deildarinnar með 24 stig.



Athugasemdir
banner
banner
banner