Bayern reynir aftur við Walker - Neves til Man Utd?
banner
   fös 17. júlí 2020 19:10
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
David James á Íslandi - Á skýrslu í 2. deildinni
David James og Hermann Hreiðarsson.
David James og Hermann Hreiðarsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
David James er í þjálfarateymi Hermanns Hreiðarssonar hjá Þrótti Vogum sem mætir Selfossi í 2. deildinni í kvöld.

Fyrrum enski landsliðsmarkvörðurinn er á Íslandi miðað við Instagram-sögu hans.

James og Hermann eru stórvinir. Þeir spiluðu saman hjá Portsmouth og hafa starfað saman að leikmannaferlinum loknum. Hermann fékk James eftirminnilega til ÍBV árið 2013 og störfuðu þeir saman hjá Kerala Blasters á Indlandi árið 2018 þar sem James var aðalþjálfari og Hermann aðstoðarþjálfari.

Hermann, sem er fyrrum landsliðsmaður, tók við Þrótti fyrir rúmri viku síðan eftir að hafa þar áður verið aðstoðarþjálfari Southend í Englandi.

Hann stýrði Þrótti til sigurs gegn Völsungi um síðustu helgi og mætir liðið Selfossi í fyrsta heimaleik Hemma í kvöld. James er á skýrslu en ekkert hefur verið gefið út um hvort að hann muni starfa með Hemma í sumar. Það væri klárlega mjög athyglisvert.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner