Jose Bordalas, þjálfari Getafe á Spáni, heldur í vonina um að halda Mason Greenwood áfram hjá félaginu á næstu leiktíð.
Greenwood er á láni hjá Getafe frá Manchester United, en það er óljóst hvort hann eigi framtíð hjá enska félaginu.
Hann á að snúa aftur til félagsins eftir tímabilið og verður þá framtíð hans mun skýrari.
Forseti Getafe sagði á dögunum að hann væri til í að halda Greenwood á láni í eitt tímabil til viðbótar en þetta er allt undir leikmanninum og United komið.
„Við vitum ekkert. Félagið hans verður á endanum að ákveða hvað það ætlar að gera við hann. Síðan verðum við líka að vita hvað hann vill fyrir framtíina, en ég hef ekkert að segja í augnablikinu. Við erum ánægðir með hegðun og frammistöðu hans,“ sagði Bordalas.
Athugasemdir