Man Utd og Arsenal vilja Guehi - Osimhen gæti farið til Chelsea eða PSG - Geertruida gæti fylgt Slot til Liverpool
   lau 30. mars 2024 13:48
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Meiðslalisti Newcastle lengist - Fyrirliðinn meiddur
Mynd: EPA

Newcastle er í stórkostlegum meiðslavandræðum en meiðslalistinn lengdist enn frekar í dag.


Newcastle er 3-1 undir gegn West Ham þegar síðari hálfleikur er ný hafinn. Fyrirliðinn Jamal Lascelles meiddist á hné snemma leiks og þurfti að fara af velli.

Það var greint frá því fyrir leikinn að Sven Botman væri frá út tímabilið eftir að hafa gengist undir aðgerð. Bakvörðurinn Emil Krafth kom inn á sem varamaður fyrir Lascelles og Dan Burn færði sig í miðvörðinn með Fabian Schar.

Meiðslilisti liðsins er ansi langur en Callum Wilson, Joelinton, Kieran Trippier og Nick Pope eru meðal leikmanna sem eru á listanum ásamt Botman og Lascelles.


Athugasemdir
banner
banner
banner