Man Utd og Arsenal vilja Guehi - Osimhen gæti farið til Chelsea eða PSG - Geertruida gæti fylgt Slot til Liverpool
   lau 30. mars 2024 11:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Moyes hrósaði stuðningsmönnum Newcastle - „Ótrúlega ástríðufullir"
Mynd: Getty Images

West Ham heimsækir Newcastle í hádeginu í dag en liðin eru í harðri baráttu um Evrópusæti.


West Ham er í 7. sæti með 44 stig, þremur stigum á eftir Man Utd og níu stigum á eftir Tottenham. Newcastle er í 10. sæti með 40 stig.

David Moyes stjóri West Ham hrósaði andrúmsloftinu á St. James' Park en það er af mörgum talið eitt það besta á Englandi.

„St. James' Park er sennilega einn sá besti á landinu. Þeir hafa alltaf verið ótrúlega ástríðufullir en miðað við árangurinn undanfarið ár eða svo eru þeir örugglega meira ástríðufullir," sagði Moyes.

„Þetta er mikilvægur leikur, eins og allir héðan í frá. Held við eigum níu leiki eftir, það er mikilvægt að við getum tekið eins mörg stig og mögulegt er í hverjum einasta leik. Það eru nokkur lið að berjast um Evrópusæti og við erum eitt af þeim."


Athugasemdir
banner
banner