Varnarmennirnir Victor Lindelöf og Raphael Varane fóru báðir meiddir af velli í 1-1 jafntefli Manchester United gegn Brentford í ensku úrvalsdeildinni í gær.
Varane, sem byrjaði í miðverðinum, þurfti að fara af velli í hálfleik eftir að hafa fengið högg á ökklann.
Eftir leikinn sagði hann við blaðamanninn Steve Railston að meiðslin væru ekki alvarleg.
Sænski miðvörðurinn Lindelöf fór þá af velli í síðari hálfleiknum en svo virðist sem að hann hafi meiðst aftan í læri og erfitt að segja til um hversu alvarleg meiðslin eru.
United hefur verið í miklum erfiðleikum með að halda varnarmönnunum heilum á tímabilinu en þeir Tyrell Malacia, Luke Shaw og Jonny Evans eru allir á meiðslalistanum.
Athugasemdir