Manchester United er búið að snúa taflinu við í leiknum gegn Liverpool á Old Trafford. Staðan er skyndilega orðin 2-1 fyrir United sem jafnaði með sínu fyrsta skoti á markið í upphafi seinni hálfleiks.
Það var svo Kobbie Mainoo sem kom heimamönnum yfir á 67. mínútu með frábæru skoti utarlega úr teignum.
Það var svo Kobbie Mainoo sem kom heimamönnum yfir á 67. mínútu með frábæru skoti utarlega úr teignum.
Mainoo átti sendingu á Garnacho sem fann Aaron Wan-Bissaka sem fann svo Mainoo aftur utarlega í teignum. Mainoo sneri sér og krullaði boltann upp í fjærhornið, óverjandi fyrir Caoimhin Kelleher í markinu. Frábær afgreiðsla.
Þetta er þriðja mark 18 ára miðjumannsins á tímabilinu.
„Algjörlega stórglæsilegt mark hjá Mainoo. Stuðningsmennirnir tryllast," sagði Gary Neville í lýsingu sinni á Sky Sports.
Sjáðu markið hér.
Athugasemdir