Man Utd og Arsenal vilja Guehi - Osimhen gæti farið til Chelsea eða PSG - Geertruida gæti fylgt Slot til Liverpool
   þri 18. október 2016 23:00
Ívan Guðjón Baldursson
Myndband: Brjáluð slagsmál fyrir leik Real og Legia
Mynd: Getty Images
Real Madrid hafði betur gegn Legia frá Varsjá í Meistaradeildinni í kvöld en stuðningsmenn pólska félagsins voru til vandræða fyrir upphafsflautið.

Nokkur myndbönd birtust af látum Pólverjanna fyrir leik og herma nýjustu tölur að átta fótboltabullur og þrír lögregluþjónar hafi slasast í átökunum.

Bullurnar frá Varsjá létu einnig til sín taka í Dortmund og voru til vandræða bæði fyrir leik og á áhorfendapöllunum á meðan á leik stóð. Bullurnar mættu vopnaðar og voru meðal annars með piparúða sem var notaður gegn vallarstarfsmönnum.

Hér fyrir neðan er hægt að sjá tíu sekúndna myndbrot frá Spáni þar sem óeirðarlögreglan slæst við pólsku bullurnar.



Athugasemdir
banner